Dags: 08.02.2003 19:39
Undir 18 ára landslið íslands mátti sætta sig við tap 5 – 4 í leik á móti Ísrael í þriðju deild heimsmeistaramótsins. Leikurinn hófst klukkan 15:30 á íslenskum tíma í ólympíuhöllinni í Sarajevó. Íslenska liðið virkaði óöruggt og hikandi í fyrsta leikhluta og lenti undir 4 - 1.
Liðið kom mikið ákveðnara til leiks í öðrum leikhluta og var eins og nýtt lið væri á ferðinni, þetta var okkar leikhluti sem við unnum 0-2 þannig var staðan eftir annan leikhluta 4-3 Ísrael í vil.
Í síðasta leikhlutanum var allt í járnum og lauk honum einu marki gegn einu þannig að drengirnir okkar máttu sætta sig við 5 – 4 tap á móti Ísrael.
Mörk Íslands skoruðu, Birgir Hansen 1, Trausti Bergman 1 og Gauti Þormóðsson 2, meira um leikinn síðar.