Dags: 13.02.2003 12:48
Þau tíðindi voru að berast að Eyjapeyjar, sem stundað hafa línuskautahokkí af miklum krafti undanfarið, hafi ákveðið að taka fullan þátt í íslenskri skautamenningu. Umsókn þeirra um inngöngu í Skautasamband Íslands verður tekin fyrir í kvöld á fundi hjá ÍBV. Formaður ÍHÍ mun verða gestur á fundinum og flytur þar erindi um uppbyggingu og starf ÍHÍ.
Við hjá SR fögnum þessu nýja félagi í íslensku skautaflórunni og vonum að það munu vaxa og dafna. Alla vega er ljóst að það verður mikið um dýrðir í sumar þegar línuskautahokkídeildin fer á fullt.
Hver veit, kannski kemur þetta félag einnig til með að taka þátt í íshokkídeildinni þegar fram líða stundir?