Fréttir

Total items: 1194

Landsliðsæfingabúðir og fleira um helgina.

Dags: 19.02.2003 12:59


Um helgina koma norðanmenn til höfuðborgarinnar til að taka þátt í landsliðsæfingabúðum sem hefjast á föstudagskvöldið og standa fram á sunnudag.
Á laugardaginn verður leikinn síðasti leikur undankeppninnar á milli SR og SA. Hefst sá leikur kl.20:00 að gömlum sið. Á undan þessum leik munu 3. flokkar þessara liða einnig mætast og hefst sá leikur stundvíslega kl.17:30.
Einhverjar breytingar hafa orðið á leikmannahópi SA þar sem 3 leikmenn þeirra taka út leikbann. Án efa verður fyllt upp í skarðið með yngri leikmönnum, sem glaðir grípa tækifærið til að sýna hvað í þeim býr.
Hjá SR er búið að hræra saman þeim eldri og reyndari við Gullkálfana sem voru í U18 landsliði sem vann til gullverðulauna nú á dögunum. Hvort að það komi til með að ganga upp á eftir að koma í ljós. Hvað sem því líður er mikil íshokkíhelgi fram undan. Nú eiga allir SR-ingar að taka sig til og mæta á laugardaginn og sjá SR leika við SA í síðasta leik deildarkeppninnar.
Áfram SR!!