Fréttir

Total items: 1194

Nýtt félag lítur dagsins ljós!!

Dags: 19.02.2003 13:03


Í gærkvöldi var stofnað nýtt félag í hokkíheiminum á Íslandi og Jakarnir frá Vestmannaeyjum eru orðnir að veruleika!! Það er nokkuð ljóst að þessir drengir sem hafa barist ötullega við að koma á fót hokkíliði í Vestmannaeyjum, hafa fegnið laun síns erfiðis með stofnun félagsins.
Formaður ÍHÍ, Magnús Jónasson, sat fundinn og kynnti fyrir mönnum starf ÍHÍ og möguleika á svelli fyrir Eyjamenn.
Við hjá SR fögnum þessum tímamótum og vonum að þetta verði til þess að fleiri félög verði stofnuð er efli hokkíið enn frekar á Íslandi.
Nánar á huga.is