Fréttir

Total items: 1194

SR - SA annaðkvöld..

Dags: 21.02.2003 16:31


Norðanmenn hafa orðið fyrir mannfalli síðustu vikur en 3 úr liði þeirra voru settir í leikbann vegna agabrots.
Af ótta við að koma til Reykjavíkur, höfuðstað Íslands, höfðu þeir samband við galdralækni nokkurn í Gili og fengu hann til að framkvæma seyð og kalla fram ævafornar hokkí-forynjur uppúr tjörninni, þarna fyrir framan skautahöllina á Akureyri.
Sögur berast nú með ýmsum boðleiðum að þar nyrðra séu þessar forynjur að draga fram sauðaleggina og ætli sér stóra hluti hér fyrir sunnan.
Fyrir þá sem ekki skilja (!), þá eru norðanmenn jafnvel tilbúnir til að stilla fram sínu elsta liði, þ.e.a.s Magnúsi Einari Finnssyni, Heiðari Gesti Smárasyni, Jónsa Hansen, Sigurgeir Haraldssyni, Ágústi Ásgrímssyni, Birgi Ágústssyni, Sigga Bald og Nonna Björnss, flestir fæddir fyrir stríð.
Ekki veit sá sem þetta skrifar hver tilgangurinn er með þessu útspili... ekki er það til þess að sýna hvers þeir eru megnugir, svona rétt í lokin á undnkeppninni.
Þótt norðanmenn haldi því fram að þessi leikur hafi enga þýðingu fyrir þá, þá gegnir öðru um okkur í SR. Það verður sett á fullt stím áfram og valtað yfir þá sem fyrir verða.

Kokhraustir norðanmenn
flykkjast yfir fjöllin,
sér ætla að leggja sunnanmenn,
stóru SR-tröllin.

Sólaðir, spældir og skotnir í kaf
verða þeir norðan bændur.
Leikurinn að lokum verður flautaður af,
og dollan kemur í okkar hendur.

Áfram SR!!