Dags: 24.02.2003 17:24
Í kvöld takast á SR og SA í Íslandsmóti karla. Það er deginum ljósara að SR-ingar eru ferskari nú en oft áður og ekki bar á öðru en þeir væru manna sprækastir á landsliðsæfingum í gærkveldi og í morgun.
Það verður án efa mikill hasar þar sem SA er ekki á því að tapa fyrir SR-ingum og við SR-ingar eru ekki á þeim buxunum að vilja tapa fyrir SA og það á heimavelli!! Allir niður í höll að hvetja sitt lið í þessum spennandi leik sem fer fram kl.20:00!! Einnig má líta á Íslandsmeistarana, 3.flokk karla í SR, taka 3. flokk SA í kennslustund kl.17:30.
Mikið hokkí framundan og mikil átök.!!
Áfram SR!!