Dags: 24.02.2003 17:42
Um helgina fór fram síðasti leikur Íslandsmótsins í 3.flokki karla í íshokkí er SR lék við SA. Skemmst er frá því að segja að okkar strákar voru ekki í neinum vandræðum með þá norðanmenn nema rétt undir lok leiksins. Kannski hsfði það einhver áhrif á leikinn að strákarnir voru þegar búnir að tryggja sér meistaratitilinn fyrir þennan leik og því kannski fullkærulausir.
Verðlaunaafhending fór fram á milli annars og þriðja leikhluta í meistaraflokks leiknum.
Strákarnir eru vel að titlinum komnir enda höfðu þeir nokkra yfirburði yfir lið Bjarnarins og SA. Greinilegt að SR-ingar eru vel sjóaðir fyrir framtíðina og mikilvægt að hlúa vel að þessum strákum.
Meira um stigafjölda leikmanna síðar.
Áfram SR!!