Dags: 25.02.2003 11:15
Klukkan 13:00 í dag munu SR-ingar leggja af stað norður yfir heiðar til að mæta SA-mönnum í fyrsta leik úrslitakeppninnar. Það lið sem verður fyrra til að vinna 3 leiki verða krýndir Íslandsmeistarar. SR hefur unnið SA nokkrum sinnum í vetur og m.a. einu sinni á þeirra heimavelli. Var sá leikur gríðarlega spennandi og er stefnan tekin á að endurtaka það.
SR-ingar eru hvergi af baki dottnir þó að þeir hafi beðið lægri hlut um síðustu helgi, 3 - 1.
Leikmenn hafa verið að stilla saman stengina og ná þeim samhljómi sem náðist fyrir áramót þegar SR var nánast óstöðvandi.
Þeir fyrir norðan eru ekki á því að missa dolluna suður til Reykjavíkur, allavegna ekki baráttulaust. Því er von á miklum og hörðum leik í kvöld kl.20:00 í skautahöllinni á Akureyri.
Fyrir þá sem hafa færi á, er um að gera að láta sjá sig og hvetja sitt lið til dáða!
Áfram SR!!