Dags: 27.02.2003 17:26
Klukkan 20:00 í kvöld eigast við SR og SA í öðrum úrslitaleik um Íslandsmeistartitillinn í íshokkí karla.
Í síðasta leik gekk mikið á og litlu mátti muna að SR næði völdum en þurftu þó að lúta í lægra haldi fyrir SA, 5 - 3.
Búist er við nokkrum breytingum á línunum hjá SR í kvöld þar sem Elvar og James eru á meiðslalistanum.
Norðanmenn koma suður heldur kokhraustir en þeir halda víst að þeir geti tekið þennan titil í þremur leikjum.
SR-ingar eru þó ekki af baki dottnir og ætla sér að fá uppreisn æru í þessum leik. Fjölmennum í höllina og hvetjum SR-ingana okkar áfram!!
Áfram SR!!