Fréttir

Total items: 1194

Úrslitaleikur #2 SR - SA 7:8.

Dags: 28.02.2003 17:32


Mikið gekk á í öðrum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitill karla í íshokkí.
Baráttu vilji SR-ingar var gríðarlegur í leik gærkvöldsins.
Fyrsta mark leiksins leyt dagins ljós á 6 mínútu. Var þar að verki Izak Hudson(SA). Stutt síðar náði Stefán Hrafnsson(SA) að auka enn á muninn fyrir SA með marki á tíundu mínútu.
Ofur refurinn Kristján Óskarsson náði að lauma pekkinum inn í mark SA-inga eftir harða sókn að marki þeirra.
Staða því 2 - 1 SA í vil eftri fyrsta leikhluta.
Rúnar "Olíutunna" Rúnarsson(SA) náði síðan að auka á forskot SA en frekar með aðstoð frá Sigurði og Stefáni þegar 7 mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta.
Næst elsti sonur Steinsen-mafínuar Guðmundur Rúarasson(16) náðí síðan að minnak muninn fyrir SR með glæsilegu skoti frá bláu línunni.
Rétt tíu mínútum síðar náði leynivopnið Snorri Rafnsson(7) að minnka muninn en frekar þegar hann setti pökkinn í markið á milli lappana á Birgi Sveinssyni(SA) sem reyndi hvað hann gat til að loka markinu.
Um mínútu síðar náðu SA-ingar að skora sitt 4 mark og var það að verki Jón Ingi(SA) með aðstoð frá Kenny Crop.
SA-ingar voru ekki hættir þar heldur náði Sigurður Sveinn(SA) að koma sínum mönnum yfir um 2 mörk með aðstoð frá Izak Hudson(SA).
Staðan orðin 5 - 3 SA í vil og ekki bjart yfir okkar mönnum.
SR-ingar komiu inní þriðja leikhlutan sem hungruð ljón og voru staðráðin í því liggja ekki fyrir SA-mönnum á heimavelli.
Eftir mikla baráttu hjá okkar mönnum náðu Ágúst Ásgrímsson(3) og Snorri Rafnsson(7) að jafna leikinn með aðstoð frá Kristjáni Óskarssyni og Ingvari Þór(20).
Eftir venjulegan leiktíma var framlengt í bráðabana í 10 mínútur. eftir þann tíma voru úrslit en óráðin, 5 - 5, og var þess freistað að ná fram úrslitum með vítakeppni.
Eftir á annan tug víta var staðan en jöfn en þá orðinn 7 mörk á móti 7.
Nú voru góð ráð dýr og ákveðið að hvort liðið um sig tæki sitthvort vítaskotið eða þar til að annar hvor aðilinn næði að skora.
Skemmst er frá því að segja að Ingvar Þór(20) náði ekki að nýta sér víta skotið fyrir SR og var því opin möguleiki fyrir SA að ná að vinna leikinn.
Í víta skotið fyrir SA fór Kenny Corp sem skaut pekkinum í markið við mikinn fögnuð sinna manna.
Staðan því orðin 7 - 8 fyrir SA og annar leikur í úrlsitum orðinn þeirra.

Erfitt verður að segja hvernig leikurinn á morgun mun fara þar sem menn hafa verið að undirbúa sig undir mikil átök.
Leikurinn verður allt annað en auðveldur og án efa verður barist til síðasta manns.

Búið er að skipuleggja hópferð til Akureyrar þar sem stuðningsmenn fara með meistaraflokknum og taka örlítinn þátt í undirbúningi fyrir leikinn.

Núna er að duga eða drepast!!!

Áfram SR!!!