Fréttir

Total items: 1194

Lokaleikurinn.

Dags: 03.03.2003 21:34


Margt hefðí getað farið betur en á horfðist í leik SR á móti SA á laugardaginn síðasta.
Óþarfa mörg mörk í fyrsta leikhluta tók vindinn úr seglum SR eftir að hafa fengið svolitla uppreisn æru í örðum úrslitaleiknum sem var á fimmtudeginum þegar SA náði með naumindun að krefja fram sigur eftir bráðabana og vítakeppni.
Við 4 mark SA manna var einsog menn væru búnir að missa trúna á því að hægt væri að vinna þetta upp.
Þeir Stefán, Jón og Kenny náðu að skora alls 4 mörk áður en SR náði að svara fyrir sig með ágætu marki þegar Ágúst Ásgrímsson náði að skora með aðstoð frá Jónasi Rafns og Ingvars.
Arnþór Bjarnason(SA) náði að skora 5 mark SA, eftir varnarmistök, áður en lotan var úti og fóru SR-ingar því inní aðra lotu með frekar slæma stöðu á bakinu.
Stefán Hrafnsson(SA) jók enn á foristu heimamanna í öðrum leikhluta með tveimur ágætum mörkum með aðstoð frá Rúnari Rúnassyni(SA) og Birni Jakobssyni(SA).
Ingvar Þór(20) náði að svara fyrir SR þegar hann skoraði flott mark úr powerplay með aðstoð frá Peter Bolin(2) og Guðmundi Björvinssyni(17).
Sigurður Sveinn Sigurðsson(SA) lokaði síðan lotunni með ágætis marki með aðstoð frá Rúnari Rúnarssyni.
Staðan því orðin 8 – 2 SA í vil og útlitið ekki gott fyrir okkar menn.
Í þriðju og síðustu lotu fóru SR-ingar að spila með höfðinu og náði Ágúst Ásgrímsson(3) að skora mark með aðstoð frá Ofur-Diddó(11) og Guðmundi Björnvissyni(17). Rúnar Rúnasson(SA) og Sigurður Sigurðsson(SA) náðu síðan að spila sig vel í gegnum sterka vörn SR og skora. Nokkru síðar náði Izak Hudson(SA) að skjóta í skautana hjá Peter Bolin(2) og pökkurinn breytti um stefnu og endaði í netinu fyrir aftan Jón Trausta(15) sem stóð í markinu.
Á þessum tímapunkti skiptu SA-menn um markmann og létu eitthvað “sprækari” menn inná ísinn. Gauti Þormóðsson(10) hrökk þá í gang og gerði SA mönnum að fíflum, margsinnis, og skildi þá eftir í reyk með hreint frábærum leik.
Helgi Páll (4) skorði ágætis mark eftir góðan undirbúning hjá þeim Gauta(10) og Steins Steinssen(19). Ekki þurftu menn að bíða lengi eftir öðru marki því að aðeins 27 sekúndum síðar skorði Helgi Páll(4) aftur með aðstoð frá Gauta(10) og Jónasi Rafni(5). Ingvar Þór(20) bætti enn stöðuna fyrir SR með góðu marki með aðstoð frá Peter(2) og Ágústi(3).
Kenny Corp(SA) og Rúnar(SA) áttu síðan lokaorðið fyrir heimamenn þegar þeir skoruðu ágætis mark þegar tæpar 2 mínútur voru eftir af leikhlutanaum.
Eitthvað hefur þeim norðanmönnum runnið kalt vatn á milli skins og hörunds þegar Helgi(4), Gauti(10) og Steinn(19) stigu á ísinn, því að þeir tóku skiptu út markmanninum sínum aftur útaf og létu Birgi Örn Sveinsson(SA) aftur í markið, slíkt var traustið.
Ekki virtist það breyta miklu því að ekki tók það nema 10 sekúndur fyrir Gauta(10) að skora mark hjá þeim frækna markmanni með aðstoð frá Peter(2) og Jónasi(5).
Leikurinn endaði og staðan orðin 11 – 7 og tíundi íslandsmeistaratitill Akureyringa orðin að veruleika.

Brottvísanir
SR: 14
SA: 32
Dómari Viðar Garðarsson