Fréttir

Total items: 1194

Breytingar á stjórn íshokkídeildar

Dags: 16.03.2003 21:58


Á aðalfundi íshokkídeildarinnar í gærkvöldi voru lagðir fram ársreikningar deildarinnar og skýrsla formanns flutt. Fram kom að starf deildarinnar hefur eflst mjög í vetur, félagsmönnum fjölgað verulega og deildin rekin með rekstrarafgangi. Á aðalfundinum var kosin ný stjórn en hana skipa eftirfarandi:
Björn Örvar, formaður (endurkjörinn)
Ólafur Gíslason, varaformaður (endurkjörinn)
Birna Björnsdóttir, gjaldkeri (endurkjörin)
Sveinn Bjarki Sigurðsson, ritari (nýr)
Helgi Páll Þórisson, meðstj. (endurkjörinn)
Jónas Rafn Stefánsson, varastj. (nýr)
Guðmundur Finnbogason, varastj. (nýr)
Þorsteinn Sævarsson , varastj. (nýr)

Hin nýja stjórn mun fljótlega koma saman og setja sér markmið fyrir næsta tímabil.