Fréttir

Total items: 1194

Undirbúningur A-landsliðsins á lokastigi.

Dags: 17.03.2003 15:02


Um helgina voru landsliðsæfingabúðir fyrir A-landslið karla í íshokkí.
Ekki var mikið þrek á þessum æfingum heldur voru áherslur aðrar svo sem samspil og powerplay.
Norður á Akureyri voru tvö Bandarísk gulldrengja lið sem voru að byrja sína árlega leikferð til Hollands.
Íslenska landsliði lék við þessi lið með ágætum árangri og fór fyrri leikurinn 8 - 6 fyrir Ísland og fór seinni leikurinn , sem var við hitt bandaríska liðið, 17 - 2 fyrir Ísland.
Eitthvað hefur aldur og magn brjóstbirtu, kvöldið áður ráðið, úrslitum fyrir þá bandarísku.
Engur að síður er að koma lokamynd á þetta blessaða landslið og ekki seinna vænna þar sem brottför er eftir tæpa viku.