Dags: 10.04.2003 15:05
Um helgina verður Sveinsbikarinn endurvakinn með pompi og prakt norður á Akureyri, fæðingarbæ Sveins "Bakara" Kristdórssonar. Sveinn var einn af upphafsmönnum íshokkís á suðurlandinu en hann lést 17.október 2000 í Skautahöllinni í Laugardal, spilandi þann leik sem hann hafði mestar mætur á.
Þeir Gulldrengir í SR hafa æft stíft undanfarið fyrir þennan leik og hafa eflst dag frá degi. Svo er aldrei að vita nema einhver gamalkunn andlit láti sjá sig þar nyðra.
Fyrri leikurinn er á föstudagskvöldið kl.22:15 og sá seinni á laugardaginn kl.17:15, eftir hvíldartíma og miðdegislúr.
Þetta verður hin besta skemmtun þar sem um tæklingalaust hokkí er að ræða og hraðinn ógurlegur.
Áfram Gulldrengir!!