Fréttir

Total items: 1194

Björninn Cup: SR - Green bay : 1 - 6.

Dags: 11.04.2003 13:24


Í kvöld áttust við Green Bay og SR í skemmtilegum leik í vináttumótinu Björninn Cup.
SR-ingar byrjuðu vel og virtust ná að halda þeim sterku Green Bay leikmönnum nokkuð í skefjum. Um miðjan fyrsta leikhluta tóku þeir Green Bay-menn sig á og léku ágætlega á móti SR-ingum og skoruðu nokkur ágæt mörk. Við þau mörk fór nokkur vindur úr okkar mönnum og varð úr nokkur óregla í spilinu, og náðu okkar strákar sér ekki almennilega á strik það eftir lifði leikhlutans.
Í öðrum leikhluta var það sama uppá teningnum, SR-ingar léku ágætlega fyrri hluta lotunnar en misstu síðan tökin á endaspettinum. Gauti Þormóðsson skoraði eina mark SR-inga með fínu skoti úr "slottinu". Í marki SR-inga lék Aron Leví Stefánsson úr 4.flokki og stóð hann sig með miklum ágætum.
Lokastaða 6 mörk Green Bay gegn einu marki SR-inga.
Leikurinn var hin besta skemmtun og flestir ef ekki allir skemmtu sér vel sem á horfðu. Hins vegar er ljóst að SR-ingar verða að leika mun fastar í seinni leik þessara liða, þar sem Green Bay menn eru grjótharðir í horn að taka og gefa ekki eftir neina tæklingu.
Dómarar leiksins voru þeir fisléttu og fótfráu Helgi Páll Þórisson og Viðar Garðarsson.