Fréttir

Total items: 1194

Sveinsbikarinn norður.

Dags: 14.04.2003 10:06


Um helgina voru spilaðir tveir leikir um hinn merka Sveinsbikar.
Gulldrengjaflokkur SR, ásamt fríðu föruneyti, fór norður yfir heiðar og lék þar tvo leiki við heimamenn. Flestir leikmenn Gulldrengja byrjuðu að æfa íshokkí í vetur og hefur fjöldi þeirra aldrei verið meiri.
Fyrri leikurinn fór 14 - 2 fyrir SA en kempan Bjarni Bjarnason og hin fótfrái Jón Gunnar skoruðu mörkin fyrir okkar menn.
Nokkra lykil leikmenn vantaði í raðir Gulldrengjanna einsog Rúnar Steinsen, Ofur-Diddó, Heiðar Inga, Andrés formann o.fl.
Í þessum leikjum skiptir árangurinn ekki aðalmáli heldur að allir skemmti sér sem best, og sú varð raunin.
Nokkuð ljóst að keppnin verður aftur að ári.