Fréttir

Total items: 1194

Íslandsmótið - endanleg dagskrá!

Dags: 22.04.2003 17:18


Þá er endanlegt leikjaskipulag fyrir Íslandsmótið tilbúið frá Íshokkísambandinu. Samkvæmt þessu mun fyrsti leikur SR hefjast kl. 19:40 föstudagskvöldið 25. apríl en mótinu lýkur síðan kl. 15:30 á sunnudegi 27. apríl. Öll lið munu leika 4 leiki. Endanleg skráning í ferðina, rútur og gistingu lýkur í kvöld, en hringt verður í alla foreldra fyrir endanlega skráningu. Fjöldi leikmanna ætti þó ekki að breytast mikið frá fyrstu könnun. Almennt skipulag ferðarinnar er lítið breytt frá því sem kynnt var í þeirri könnun, nema að leikir allra flokka (nema 6. og 7.) dreifast á alla þrjá dagana, í stað tveggja einsog kynnt var. SR mun verða með eigin rútu, gistingu og uppihald fyrir þá sem þegar hafa skráð sig í ferðina. Áhugasömum foreldrum skal bent á að vegna þess að Andrésar Andar leikunum, sem standa áttu fram á þessa helgi, var aflýst hefur rýmkast mjög um gistingu á Akureyri.
Leikir SR eru annars sem hér segir:

Föstudagur 25. apríl
19:40: SR-SA í 2.fl
20:55: SR-SA í 4a
22:40: SR-Bj í 1.fl

Laugardagur 26. apríl
7:30: SR-SA í 5b
8:50: SR-Bj í 5a
10:25 SR-Bj í 5b
11:15: SR-SA í 4b
12:00: SR-SA í 5a
12:50: SR-Bj í 7.fl
13:25: SR-Bj í 6.fl
13:25: SR-SA í 7.fl
15:25: SR-Bj í 4a
16:25: SR-Bj í 2.fl
18:15: SR-Bj í 5b
19:05: SR-SA í 1.fl
20:20: SR-Bj í 4b
21:05: SR-SA í 4a

Sunnudagur 27. apríl
07:30: SR-Bj í 5a
08:05: SR-Bj(c) í 4b
09:50: SR-Bj í 6.fl
09:50: SR-SA í 7.fl
10:25: SR-SA í 6.fl
10:25: SR-Bj í 7.fl
11:50: SR-Bj í 5b
12:25: SR-SA í 5a
13:00: úrslitaleikur 2 í 4b
14:00: SR-Bj í 4a
14:45: úrslitaleikur 1 í 4b
15:30: MÓTSLOK