Fréttir

Total items: 1194

Árshátið 2.maí!!

Dags: 28.04.2003 13:06


Foreldrar, forráðamenn, vinir og velunnarar!! Árshátíð Skautafélags Reykjavíkur verður haldin á Broadway(Hótel Ísland) föstudagskvöldið 2.maí.
Árshátíðarnefndir beggja deilda SR eru búnar að vera ötular við undirbúning þessarar árshátíðar undanfarið og lítur út fyrir að mikið verði um dýrðir.
Þeir sem hafa áhuga á því að koma og taka þátt í árshátið skautafélagins er vinsamlegast bent á að hafa samband við Árshátiðarnefnd í netfangið sr@skautafelag.is hið fyrsta.
Boðið verður uppá hlaðborð með ítölsku ívafi og heimatilbúin skemmtiatriði úr smiðju beggja deilda.
Miðaverð er 3.800 kr per manninn.-
Áfram SR!!