Dags: 28.04.2003 13:03
Í gær lauk Íslandsmótinu á Akureyri með lokauppgjöri í nokkrum flokkum. SR-ingar stóðu sig með miklum ágætum á þessu móti og árangurinn sérstaklega góður í ljósi þess að SR mætti með marga nýliða á þetta mót sem stóðu sig sérstaklega vel. Eins var eftirtektarvert hversu liðsandinn var góður hjá SR-ingum og framkoma þeirra í alla staði til fyrirmyndar.
SR-ingar töpuðu naumt fyrir SA í 2. flokki sem unnu auk þess Íslandsmeistaratitilinn í 1. flokki. SR missti af titlinum í 4. flokki til Bjarnarins í síðasta leik sínum, hlutu þó jafnmörg stig og þeir, en voru með lakara markahlutfall. Í 5. flokki var ekki keppt um titil en SR voru þar með áberandi sterkasta liðið. Í 6. og 7. flokki SR er framtíðin mjög björt og sterkir árgangar í uppsiglingu, ef borið er saman við hin liðin. Ekki var var keppt í 3. flokki á þessu móti enda búið að útkljá þá keppni en SR vann Íslandsmeistaratitilinn í þeim flokki fyrr í vor.
Fjölmargir foreldrar SR leikmanna mættu til Akureyrar og lögðu hönd á plóginn við allt skipulag, en það krefst heilmikillar vinnu að halda utan um öll lið og alla leikmenn. Liðstjórarnir úr röðum foreldra stóðu sig mjög vel og sýndi sig hversu mikilvægt það er fyrir þjálfarana að hafa þá innanborðs.
Mótið var vel skipulagt af hendi Akureyringa, allar tímasetningar stóðust og, eins og fyrri daginn, góður viðurgjörningur frá foreldrafélagi SA. SR vill þakka SA fyrir helgina, svo og Birninum fyrir drengilega keppni.
Stjórnin