Fréttir

Total items: 1194

Nánar um Árshátiðina!!

Dags: 30.04.2003 09:03


Árshátiðin hefst kl.20:00 á föstudagskvöldið í norðursal Broadway /Hótel Ísland). Stuttu eftir það hefst borðhald og í framhaldi af því verður skemmtidagskrá sem er í höndum valdra aðila úr báðum deildum SR.
Þeir sem eru áhugasamir geta skoðað salinn hér

Matseðillinn:
Forréttir:
Bruschetta með osti og ólífum, létt grilluð hörpuskel í hvítlaukssalsasósu, nauta-carpaccio með furuhnetum, reyklaxa-carpaccio með hunangs-sesambalsamico, sjávarréttarsalat með sólþurkuðum tómötum og ólífum, sveitaskinka á melónu m/ferskum parmesanosti og ostafyllt ferkst pasta með saltfisk, ólífum, basil, hvítlauk og fl.

Heitt:
Grænmetislasagne, lasagne með kjötsósu og kjúklingur "alla Cacciatora", Púrtvínslegnar svínalundir, Kalkúnasteik með tilbehör.
Úrval af ítölskum brauðum, tapenade, kryddolíur og fl.

Eftir borðhald og skemmtidagskrá verður sett upp lítið dansgólf þar sem fólk getur fengið að tjútta einsog tíðkast hefur á SR-árshátiðum síðustu ára.
Plötusnúður kvöldsins verður DJ El Baron.

Veislustjórar eru Elvan Jettemuggan(Elvar Jónsteinsson) og Bjelgi Pjáll( Helgi Páll Þórisson).

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig eigi síðar en fyrir kl.18:00 á miðvikudaginn 30.04.03.

Góðar stundir.