Fréttir

Total items: 1194

Lokahátið yngri flokkanna í gærkvöldi

Dags: 05.05.2003 13:01


Í gærkvöldi fór fram lokahátíð yngri flokkanna. Æfingar voru með óhefðbundnu sniði sem lauk með grilluðum pylsum fyrir mannskapinn í blíðskapar veðri.
Veitt voru verðlaun fyrir góðan árangur í yngri flokkunum. Í 6. og 7. flokki fengu allir leikmenn viðurkenningu fyrir góðan árangur og mikinn áhuga. Aðrir sem fengu viðurkenningar voru eftirtaldir:

4. flokkur
Besti sóknarmaður: Þorsteinn Björnsson
Besti varnarmaður: Gunnlaugur Karlsson
Mestu framfarir: Sturla Gíslason

5. flokkur
Besti sóknarmaður: Egill Þormóðsson
Besti varnarmaður: Óskar Grönholm
Mestu framfarir: Þengill Björnsson

Auk þess var Aron Leví Stefánsson í 4. fl. valinn besti markmaðurinn. Viðurkenningar í 3. fl. verða veittar í kvöld.

Áfram SR!!