Fréttir

Total items: 1194

Kanadamenn heimsmeistarar!!

Dags: 12.05.2003 09:13


Í gær kepptu Svíþjóð og Kanada til úrslita um heimsmeistaratitilinn í íshokkí en leikurinn, sem RÚV sýndi í beinni útsendingu, fór fram í Finnlandi. Leikurinn var mjög skemmtilegur, Svíar komust í 2-0 en Kanadamenn náðu að jafna 2-2 og knýja þannig fram framlengingu. Kanadamenn skoruðu svo gullmarkið í framlengingunni, en töluverðan tíma tók þó að úrskurða hvort um löglegt mark hafi verið að ræða eða ekki. Svíar geta nagað sig í handarbökin fyrir úrslitin þar sem þeir höfðu fjölmörg tækifæri á að gera út um leikinn með opnum færum er þeir fengu. En svona er íshokkí!
RÚV eiga miklar þakkir skildar fyrir að hafa viljað sýna þennan leik og þá í beinni útsendingu. Auk þess er vert að þakka fréttamanni fyrir skemmtilega lýsingu, sem og Viðari SR-ingi Garðarssyni. Lýsing þeirra var með því betra sem sést í beinum lýsingum frá íþróttaleikjum hér á landi - gott málfar, fjörleg og afslöppuð en samt byggð á þekkingu. Nú þarf RÚV bara að fylgja þessu eftir og leita þá aftur í smiðju Viðars.