Dags: 13.05.2003 09:17
Á sunnudagskvöldið lauk U15 Björninn Cup í Skautahöllinni í Laugardal. Til úrslita léku Farsta frá Svíþjóð og Green Bay frá BNA. Leikurinn var hin besta skemmtun, vel spilaður og hraður. Leikar fóru svo að Green Bay vann leikinn 5-4 og þar með mótið. Á undan þessum leik léku SR og Björninn um þriðja sætið. SR-ingar komust í 2-0 en Björninn náði að klóra í bakkann og síðan vinna naumlega 2-3. SR-ingar fengu fjölmörg tækifæri á að bæta við mörkum, léku oft á tíðum mjög vel saman gegn sterku Bjarnarliði, en ekki gekk það eftir að þessu sinni, þrátt fyrir mikla baráttu og góðan liðsanda.
Íslensku liðin áttu við ofurefli að etja í þessu móti, hraðinn of mikill og harkan kannski oft á tíðum fullmikil. Ekki bætti úr skák að íslensku liðin, sérstaklega SR-ingar sem voru með fáa úr 88 árganginum, voru með yngri lið. Hins vegar mátti greinilega sjá að íslensku liðin efldust með hverjum leik, bæði leikskipulag og tækni, en ekki hvað síst sjálfstraustið. Þetta veit á gott.
Mótið var í alla staði mjög vel skipulagt og Birninum til sóma. Hins vegar má bæta um betur, og þá sérstaklega umgjörð dómgæslunnar. T.d. er nauðsynlegt að dómaratríó sé í hverjum leik og að jafnvel erlendur dómari verði fenginn til að dæma leiki mótsins. Ennfremur væri gaman að bæta við fleiri erlendum liðum. Þetta myndi kosta meiri vinnu en til mikils er að vinna, þar sem mót af þessu tagi eru vítamímssprauta fyrir íshokkí í landinu. Það mátti sjá á okkar strákum.