Dags: 14.05.2003 08:48
Um síðustu helgi voru veitt einstaklingsverðlaun fyrir góðan árangur í 3. flokki. Besti sóknarmaðurinn var valinn Gauti Þormóðsson, besti varnarmaðurinn Þórhallur Viðarsson og verðlaun fyrir mestar framfarir á tímabilinu fékk Geoffrey Þórkarl. Auk þess voru veitt verðlaun fyrir Reykjavíkurmótið í 3. flokki en Úlfarnir, annað liða SR-inga í því móti, urðu Reykjavíkurmeistarar. Hitt lið SR-inga, Fálkarnir, höfnuðu í 3. sæti. Til hamingju með árangurinn.