Dags: 19.05.2003 09:10
Núna þegar ístímabilinu er formlega lokið og íshokkímenn farnir að dusta rykið af línuskautunum, þurfa allir þeir sem eiga eftir að hreinsa til í búningsklefunum að sækja sinn útbúnað og ganga frá eftir sig. SR er ekki með klefana í sumar en hreinsa verður allt þaðan út fyrir 1.júní - og engar undanþágur!. Skautahöllin er opin alla daga frá 10:00 til 18:00.
Þeir sem eiga þarna búninga og annan búnað eru því vinsamlegast beðnir um að sækja það hið fyrsta.