Dags: 26.05.2003 09:07
Endaþótt komið sé sumar og íshokkí því ekki ofarlega í hugum margra er úrslitakeppni NHL í fullum gangi. Nú er ljóst að New Jersey Devils og Anaheim Mighty Ducks mæta í úrslitahrinunni, en Devils unnu Ottawa Senators í æsispennandi hrinu, 4-3, og Anaheim unnu Minnesota Wild 4-0. Það kemur flestum mjög á óvart að Anaheim skuli hafa náð þetta langt en liðið er greinilega mjög sterkt, enda slógu þeir Detroit Redwings fyrr út í úrslitakeppninni. Devils eru hins vegar vanir að vera í úrslitahrinunni en það eru mörgum vonbrigði að Ottawa skyldi ekki slá þá út þar sem þar er á ferðinni ungt og mjög skemmtilegt lið. En eins og fyrri daginn voru það markmennirnir er réðu úrslitum, Martin Brodeur hjá Devils og þá sérstaklega Jean-Sebastien Giguere hjá Anaheim sem beinlínis komu þeim í úrslitahrinuna. Allavega, þessir leikmenn fá ekki sumarfríið sitt alveg strax.