Dags: 26.06.2003 17:21
Þá hefur meistaraflokksfyrirliðinn, Ingvar Þór Jónsson, hrokkið í gang eftir mánaðarlangt sumarfrí og skipulagt þrekæfingar fyrir eldri flokka í SR. Núna þýðir ekkert annað en að láta hendur standa fram úr ermum og huga að þreki fyrir næsta tímabil.
Æfingatímar eru eftirtaldir:
Mánud. og fimmtud. kl. 20.00
Laugard. kl. 17.00
Mæting í hlaupagalla og klárir í æfingar sem eru fyrir alla í 4.flokki og eldri.