Dags: 08.08.2003 19:41
Þessa dagana er verið að frysta svellið í skautahöllinni í Laugardal en nú þegar er búið að bóka höllina fram til 24. ágúst. Um næstu helgi hefst íshokkínámskeið í umsjá Sergei Zak þjálfara Bjarnarins sem mun standa fram til 15.ágúst en þá hefjast æfingabúðir fyrir listskautara á vegum Listskautasambandins en þeim lýkur 24. ágúst. Reglulegar æfingar hjá SR munu svo hefjast skv. stundatöflu í fyrstu viku september en það verður auglýst síðar er nákvæmar tímasetningar liggja fyrir.