Fréttir

Total items: 1194

Skautanámskeið fyrir byrjendur

Dags: 21.08.2003 23:23


Í byrjun september hefst skautanámskeið fyrir byrjendur hjá SR í skautahöllinni í Laugardal. Námskeiðið er hugsað fyrir börn með litla reynslu af skautum en á námskeiðinu er farið í grunnatriði skautaiðkunar. Þetta námskeið er kjörið fyrir þau börn sem hafa áhuga á íshokkí en er þau hafa öðlast grunnkunnáttu á skautum geta þau hafið æfingar innan íshokkídeildarinnar. Skráning í þetta námskeið er á sr@skautafelag.is og laugardaginn 30. ágúst í skautahöllinni í Laugardal milli kl . 13:00 og 16:00. Þau börn sem ekki eiga skauta geta leigt þá gegn vægu gjaldi í skautahöllinni.