Dags: 29.08.2003 08:41
Laugardaginn 30.ágúst verður haldin opnunarhátíð Skautahallarinnar í Laugardal fyrir veturinn 2003 - 2004. Dagurinn er skipulagður af Skautahöllinni og Skautafélagi Reykjavíkur en þar gefst almenningi tækifæri á að prófa skauta og taka þátt í ýmsum uppákomum á ísnum. Ennfremur verða bæði íshokkídeildin og listhlaupadeildin með sýningaratriði og kynningu á sinni starfsemi. Á sama tíma fer fram skráning byrjenda í báðar deildirnar. Við bjóðum alla velkomna á opnunarhátíðina en hún stendur frá kl. 13:00 - 17:00..