Dags: 02.09.2003 14:01
Í gær lenti sænski þjálfarinn okkar hann Peter Bolin. Ekkert var verið að tvínóna við hlutina og strax hafist handa við að þjálfa liðið, varla lentur.
Mikið var skautað og fengu strákarnir í 2. og 3. flokki lítið sem ekkert að snerta pökkinn þessa fyrstu æfingu með þjálfaranum! Meistaraflokkurinn fékk svo svipaðan skammt af skautaæfingum og mátti sjá að sumir áttu í erfiðleikum með að dusta rykið af skautatækninni eftir sumarið. Mörgum í MFL fannst þó þessi fyrsta æfing í léttari kantinum, en það er nokkuð ljóst að lognið er alltaf mest á undan storminum.
Meistaraflokkurinn í haust er stór og efnilegur og ekki útilokað að hörð atlaga verði gerð að titlinum í vetur.