Dags: 13.09.2003 18:48
Hinn árlegi skiptimarkaður verður haldinn þriðjudaginn 16. september frá kl. 18:00 – 20:00 í fundarsal Skautahallarinnar. Þar gefst kostur á að selja gamlan eða lítið notaðan íshokkíútbúnað sem ekki er lengur í notkun, og allir þeir er vantar ódýran útbúnað geta þarna kannski fundið eitthvað við sitt hæfi. Við hvetjum eindregið félagsmenn til að nýta sér þetta tækifæri - þeir sem ætla að selja útbúnað mæti kl. 17:50.