Fréttir

Total items: 1194

Skautaskólinn - vel sóttur!

Dags: 04.10.2003 12:39


Í haust hóf göngu sína Skautaskóli á vegum íshokkídeildar SR fyrir börn og unglinga. Skemmst er frá því að segja að skólinn hefur notið mikilla vinsælda undir stjórn Helga Páls skautakennara. Þátttaka hefur farið fram úr björtustu vonum en að jafnaði mæta 30 - 50 börn í kennsluna. Þá hafa mörg börn náð það góðri leikni á skautum og í kylfutækni í Skautaskólanum að þau hafa geta skráð sig í íshokkídeildina og hafið þar reglulegar æfingar í sínum flokki. Í viðurkenningarskyni hafa þau fengið kylfu frá deildinni. Búast má við að enn fleiri muni á næstu vikum "útskrifast" úr Skautaskólanum.