Fréttir

Total items: 1194

Átökin nálgast!!

Dags: 08.10.2003 09:06


Í haust hefur meistaralokkur SR æft stíft undir stjórn Peter Bolin. Honum hefur tekist að slípað af leikmönnum sumarmörina og gera þá vel leikhæfa, enda hafa æfingar staðið yfir frá því í ágúst. Leikmönnum til mikilar skelfingar uppgötvuðu þeir ýmsa nýja vöðva og óx hjá þeim styrkur á áður óþekktum stöðum. Hin liðin tvö hafa m.a. verði að basla við að sjóða saman gamlar frystihúsvélar til að ná fram klaka til að geta æft, í það minnsta reynt það. En stefnan hjá meistaraflokki SR er skýr í vetur, stefnan er tekin á titill og ekkert minna.

Við SR-ingar eflumst dag frá degi þar sem þátttaka í yngri flokkum, og þá sérstaklega í skautaskólanum, hefur verið góð og ekki laust við það að menn sjái fyrir sér breiðan hóp efnilegra leikmanna í yngri flokkunum.