Fréttir

Total items: 1194

Keppnisferð SR til Skandinavíu

Dags: 08.10.2003 22:25


Undanfarnar vikur hefur verið unnið ötullega að skipulagi keppnisferðar 3. og 4. flokks SR til Svíþjóðar og Danmerkur í lok október. Undirbúningur ferðarinnar hefur tekið þónokkurn tíma og margir þar komið við sögu enda þótt mest hafi mætt á Peter þjálfara og svo fjáröflunarnefndinni. Nær allir leikmenn 3. og 4. flokks munu leggja í víking en spilað verður við þrjú lið í Svíþjóð og eitt í Kaupmannahöfn. Auk þess eru á annan tug foreldra sem fara með. Þetta verður án efa mikil ævintýraferð og gott fyrir leikmennina að kynnast nýjum liðum og leikmönnum.