Fréttir

Total items: 1194

Björninn fær loksins ís!

Dags: 13.10.2003 23:34


Í dag er stór stund fyrir íslenskar skautaíþróttir er æfingar hefjast í hinni nýju skautahöll í Grafarvogi. Skv. upplýsingum á heimasíðu Bjarnarins geta þeir Bjarnarmenn nú loksins hafið æfingar á ísnum. Opnunin hefur dregist talsvert og því gleðilegt að loksins skuli ísinn tilbúinn, enda hlítur þessi bið að hafa reynt á þolrifin, sérstaklega hjá öllum börnunum sem bíða í ofvæni á hliðarlínunni. Þessi nýja skautahöll mun enn auka hróður og vöxt skautaíþróttanna, sem er hið sameiginlega markmið allra þeirra er að þessum málum koma. SR óskar Birninum til hamingju með þessa nýju aðstöðu. Nú er röðin komin að öðrum sveitafélögum hér á höfuðborgarsvæðinu að hefja undirbúning að þriðju skautahöllinni; það getur ekki verið að einungis Reykjavík og Akureyri hafi áhuga á skautaíþróttum!