Dags: 13.10.2003 23:34
Jónas Breki Magnússon, sem er okkur íshokkímönnum á Íslandi að góðu kunnur, er að hamast í íshokkí í 1.deild í hinni stóru Danmörku. Svo virðist að hann sé að gera góða hluti þar ytra ef marka má frétt á ihi.is. En þar segir að hann hafi skorað alls 3 mörk og gefið eina stoðsendingu í síðasta leik síns liðs sem heitir því sérstaka nafni Gladsaxe Bears. Nánar á ihi.is.