Fréttir

Total items: 1194

Erlend lið á íshokkímót í Skautahöllinni

Dags: 15.10.2003 18:43


Haldið verður alþjóðlegt mót í íshokkí í Reykjavík 21.-23. nóvember n.k., eða svokallað "ICELAND INVITATIONAL". Mótið er fyrir "reynslulið", "öldunga" og kvennalið en nú þegar hafa á annan tug erlendra liða skráð sig. SR-ingar munu senda meistaraflokkinn sinn í mótið og svo má búast við að Gulldrengirnir taki þátt, og jafnvel fleiri íslensk lið. SR hefur tekið þátt í undirbúningi þessa móts, mun sjá um skipulag leikja en að öðru leyti er undirbúningur mótsins í höndum IT ferða. Hægt er að sjá nánar um þetta á www.skautaholl.is