Dags: 17.10.2003 00:09
N.k. sunnudagskvöld leikur SR æfingaleik við Björninn í meistaraflokki. Leikurinn fer fram í Laugardalnum og hefst kl. 19:35. Af þessum sökum fellur niður æfing 2. og 3. flokks. Þetta verða fyrstu leikir þessara tveggja liða í Mfl. á þessari leiktíð, og tími til kominn myndu margir segja! En núna fær íþróttin vonandi að njóta sín, til þess er leikurinn gerður. Fjölmennum öll í Laugardalinn enda innbyrðisviðureignir SR og Bjarnarins ávallt skemmtilegar.