Dags: 23.10.2003 08:31
Um helgina verður fyrsti leikurinn í Íslandsmóti karla í íshokkí er stórveldin SR og SA leiða saman hesta sína norðan heiða á laugardag kl.18:00. Strax á eftir þessum leik munu 3.flokkar þessara liða mætast.
Það hefur verið löng bið eftir að Íslandsmótið hæfist og virðist sú bið nú vera á enda. Þeir harðkjarna SR-ingar fyrir norðan (sem eru þónokkrir) eru vinsamlegast beðnir um að taka daginn frá og mæta niður í skautahöllina og hvetja sitt lið áfram. Áfram SR!!