Dags: 24.10.2003 17:33
Norðanmenn hafa undanfarið verið að brenna af sér sumarlýsið þar sem lítið hefur verið um skipulagðar æfingar hjá þeim í sumar. Ennfremur hafa þeir flutt inn slóvenska bræður sem eiga víst að fylla upp í þá pínulitlu skoru sem Kenny Corp skildi eftir sig. Í slagtogi með þeim er svo gamall kunningi þeirra Akureyringa, Tibor Tatar. Ekki er vitað hvort þetta þríeyki sé í leikhæfu ástandi, það mun koma í ljós á morgun kl. 18:00 í Skautahöllinni á Akureyri, er þeir mæta SR-ingum í þessum fyrsta leik Íslandsmótsins.
Þetta verður án efa skemmtilegur leikur fyrir margar sakir þó sérstaklega hvernig núverandi Íslandsmeisturum tekst að skríða undan sumri. Ennfremur verður gaman að fylgjast með hinum nýja leikmanni SR-inga, Kanadamanninum Jason Selkirk sem gekk í raðir SR-inga í haust. Svo verður spennandi að sjá hvort Richard Tahtinen, nýkominn með íslenskt ríkisfang, sé sóknarmaðurinn sem SR-inga hefur vantað hingað til.
Eftir meistaraflokksleikinn munu svo 3.flokkar liðanna munu mætast í sínum fyrsta leik í Íslandsmótinu. Þetta verður eini leikur SR-ingar fyrir keppnisferðina til Svíþjóðar í næstu viku.
Áfram SR!!