Dags: 24.10.2003 17:34
Íshokkísamband Íslands tók í dag í notkun nýtt kerfi til að halda utan um alla leiki sem verða spilaðir í vetur.
Kerfi gerir fólki kleyft að fylgjast með gangi leikja "live" á heimasíðu ÍHÍ. Ekki er þó verið verið að tala um myndir heldur fyrst og fremst tölulegar upplýsingar um leikinn.
Hægt er að skoða þetta nánar á www.ihi.is/Live. Tekið skal fram að í dag er verið að prufukeyra kerfið þannig að sá leikur sem er í gangi á netinu er ekki raunverulegur. Kerfið verður síðan tekið formlega í notkun á morgun þegar stórveldin mætast norður á Akureyri.