Fréttir

Total items: 1194

Íslandsmót karla: 7 - 5 fyrir SA á móti SR

Dags: 26.10.2003 11:30


Í gærkvöldi áttust við á Akureyri SR og SA í sínum fyrsta leik í Íslandsmóti karla. Fyrirfram var búist við að liðin, sérstaklega SA menn, væru ekki komin í sitt besta form, svona í upphafi leiktíðar. Það koma enda á daginn þar sem bæði liðin sýndu slakan leik og voru langt frá sínu besta. SR tók fljótlega forystuna og komst í 2-0 áður en SA náði að jafna 2-2. Þá tóku SR-ingar aftur við sér og komust í 4-2, og síðan 5-3. Þá var eins og allur vindur væri úr SR-ingum, algert agaleysi á vellinu sem SA menn voru fljótir að nýta sér með þremur mörkum. Staðan því 6-5 fyrir SA. Hélst þessi staða bróðurpart seinni hálfleiks, þar sem liðin, sér í lagi SR-ingar, skiptust á að gera mistök. Undir lok leiksins bættu svo SA-ingar einu marki. Lok leiksins 7-5.

Í þessum leik kom glögglega fram að SR-ingar þurfa að bæta sinn leik þegar á móti blæs. Í upphafi virtist sem þeir gætu hæglega unnið leikinn og í stöðunni 5-3 virtust þeir hafa leikinn í hendi sér. Á sama tíma voru norðanmenn að sýna afspyrnuslakann leik, sem kannski endurspeglaði þann stutta tíma sem þeir hafa haft til æfinga. Það má því segja að SR-ingar hafi misst af gullnu tækifæri á að vinna SA á þeirra eigin heimavelli. Ýmislegt jákvætt má þó nefna í leik þeirra einsog t.a.m. góðir sprettir Helga Páls (með 2 mörk), krafturinn í Richard, meðan hans naut við, og stoðsendingar frá Jason. Eins komust ungu leikmennirnir þokkalega frá sínu og hraðaupphlaupsmark Gauta veit á gott fyrir tímabilið.

Allar nánari upplýsingar og tölfræði um leikinn má finna á heimasíðu ÍHÍ, www.ihi.is/Live.