Dags: 27.10.2003 13:42
S.l. miðvikudag fékk íshokkídeild SR í heimsókn um 70 krakka úr 4. bekk Langholtsskóla en SR bauð upp á ókeypis kynningu á íshokkí í samráði við bekkjarkennara og Skautahöllina í Laugardal. Krakkarnir voru hjá okkur í rúma klukkustund þar sem þau horfðu á kynningarmyndband um íshokkí, skoðuðu hokkíbúninga, fengu skautakennslu og prófuðu íshokkí. Þetta mæltist vel fyrir hjá krökkunum sem kvöddu okkur með bros á vör staðráðin í að koma oftar á skauta og jafnvel mæta á æfingar hjá okkur. Eins voru þjálfarar og aðstoðarmenn SR ánægðir með krakkana sem frá hrós frá okkur fyrir góða frammistöðu á skautum.