Dags: 03.11.2003 20:46
Í dag komu leikmenn 3. og 4. flokks SR heim úr keppnisferðalagi sínu til Svíþjóðar og Danmerkur, þar sem leikið var í Lundi, Helsingjaborg, Trelleborg, Höörs og á Amager í Kaupmannahöfn. Ferðin var ströng og erfið, leiknir 4 leikir á 5 dögum, en jafnframt mikil upplifun. Eftir leiki við Lund á miðvikudeginum mættu SR-ingar hinu geysisterka liði Helsingjaborgar. Okkar menn stóðu sig mjög vel en þurftu að lúta í lægra haldi fyrir kröftugu og leiknu lið Helsingjaborgar, en 4. flokkur tapaði 6-3 og 3. flokkur 5-1. Á föstudeginum lék 3. flokkur svo við Frosta frá Höörs. Leikurinn var jafn og spennandi sem lauk þó með sigri Frosta 8-5. Þarna má segja að SR-ingar hafi misst af góðu tækifæri til að leggja Svía að velli enda mikið jafnræði með liðunum. Um kvöldið lék svo 4. flokkur við Trelleborg Vikings. Umgjörðin um þann leik var stórkostleg í fallegri skautahöll. Fánar landanna hengdir upp, reykský notað í kynningu á leikmönnum, þar sem þeir sænsku komu skautandi úr víkingaskipi er ýtt var inn á ísinn, og þjóðsöngvar landanna leiknir. Þessi tilkomumikla kynning virtist þó hafa slævandi áhrif á okkar menn því þeir þurftu að þola stórt tap, 14-0, í leik þar sem liðið lék langt undir getu. Þrátt fyrir þetta tap voru SR-ingar glaðir í leikslok enda andinn í liðinu góður og mikilvæg reynsla orðin til.
Á sunnudagsmorgni yfirgaf hópurinn svo Svíaríki og hélt til Kaupmannahafnar þar sem SR-ingar skyldu etja kappi við Amager Jets. Fyrst lék 4. flokkur og endaði sá leikur 5-3 fyrir Danina í jöfnum og spennandi leik. Reynslan af æfingajleikjunum við sænsku liðin var greinilega farin að segja til sín. Um kvöldið lék svo 3. flokkurinn við Amager Jets. Sá leikur reyndist hin besta skemmtun þar sem SR-ingar tóku hraustlega á Dönunum og sigruðu örugglega 5-1. Okkar menn fögnuðu þessum sigri innilega enda hafði liðið vaxið í hverjum leik og einungis tímaspursmál hvenær þeir myndu uppskera laun erfiðins. Stemningin í hópnum var til fyrirmyndar sem og spilamennskan þar sem allir leikmenn þekktu sitt hlutverk og skiluðu því. Sigurinn var því góður endir á stórkostlegri keppnisferð.
Fyrir utan leikmennina 38 sem tóku þátt í ferðinni voru um 15 foreldrar með í för. Þessi hópur foreldra gegndi lykilhlutverki í því að ferðin tókst svona vel, andinn góður í hópnum og allir tilbúnir að vinna það sem gera þurfti. Hér má heldur ekki gleyma hlutverki Peters þjálfara í skipulagi ferðarinnar, sænsku foreldrunum sem tóku allan 4. flokkinn í heimagistingu sem og þeim hópi foreldra sem kom að fjáröflun fyrir ferðina. Allur þessi hópur á þakkir skyldar fyrir siit framlag og góðan félagsanda. Þessi ferð gleymist seint.