Dags: 09.11.2003 23:14
Á laugardagskvöldið léku SR-ingar við Akureyringa í Íslandsmóti karla. Leiksins verður vart minnst sem spennandi rimmu milli þessara tveggja höfuðandstæðinga í íslensku karlaíshokkí. Bæði liðin virtust sætta sig við rólegan leik og litla stemningu fyrir þá fáu áhorfendur sem sóttu leikinn. Akureyringarnir gerðu það sem þeir þurftu að gera til að vinna og SR-ingar gerðu það sem þeir þurftu til að tapa. Úrslitin 6-3 fyrir SA. Það háði greinilega SR að Richard og Ágúst voru fjarri góðu gamni en það afsakar ekki frammistöðu flestra leikmanna sem léku undir getu. Það gladdi þó augað gott hraðaupphlaupsmark Svavars Rúnarssonar og "power-play" mark Guðmundar Björgvinssonar sem verður sífellt meira ógnandi á bláu línunni í "power-play". En engu að síður; þessi leikur gleymist fljótt og nú er bara að mæta rétt stemmdur í fyrsta leikinn á móti Birninum.