Dags: 12.11.2003 23:24
Síðustu helgina í nóvember fer fram hið árlega Brynjumót á Akureyri fyrir yngri flokka (þ.e.4/5/6/7 fl.). Undanfarin ár hefur mótið byrjað á föstudagkveldi og síðan lokið um hádegisbil á sunnudegi. Nú þegar er farið að undirbúa ferðina af hálfu SR en ekki verður þó hægt að ganga frá lokaskipulagi fyrr en dagskrá mótsins liggur fyrir af hálfu Akureyringanna. Eins og undanfarin ár verður SR með rútuferðir og sameiginlega gistingu fyrir leikmenn og foreldra sem kjósa sér það. Nánari upplýsingar um mótið munu berast öllum leikmönnum og foreldrum þeirra á næstu dögum.