Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn 0:0 - Æfingaleikur

Dags: 13.11.2003 23:00


Í gærkvöldi spiluðu SR og Björninn léttan æfingaleik í nýrri Egilshöllinni í Grafarvogi. Þeir Elvar, Richard, James, Árni og Hallur komust ekki í þennan leik vegna anna, enda leikurinn settur á með stuttum fyrirvara. Því fengu þeir yngri meiri leiktíma, en þeir eldri þurftu að sýna hvers þeir voru megnugir í líkamlegu þoli. Spilaður var tveggja lotu leikur með stuttu stoppi á milli leikhluta. Eftir þessum leik að dæma hafa Bjarnarmenn tekið gríðarlega miklum framförum undanfarnar vikur, bæði í líkamlegu þoli og styrk, og rússneskar þolæfingar greinilega farnar að bera ávöxt.
SR-ingar fengu fjöldamörg tækifæri á að ná yfirhöndinni í leiknum án þess að nýta sér þau, þegar SR var einum eða tveimur fleiri, og því ljóst að stilla verður liðið saman fyrir komandi leiki.
Eftir mikla baráttu í fyrstu lotu tóku SR-ingar að pressa meira og áttu Bjarnarmenn stundum í vandræðum með að "höndla" pressuna. Besta skot SR-inga í seinni leikhlutanum átti Guðmundur Björgvinsson, sem spilaði hægri væng en ekki í vörn einsog vanalega. Bjarnarmenn áttu svo sín dauðafæri sem þeir náðu ekki að nýta. Þessum æfingaleik lauk með markalausu jafntefli en þau eru sjaldséð í íslensku íshokkíi.
Dómarar leiksins voru heimamennirnir og bræðurnir Símon og Snorri Sigurðssynir og fór þeim þessi leikur vel úr hendi enda ekki auðvelt að dæma leik á sínum heimavelli.