Dags: 16.11.2003 18:39
Í frétt um æfingaleikinn við Björninn gleymdist að nefna Jason Selkirk í þann hóp manna sem ekki gátu mætt í þennan leik.
Meira um leikinn: Ástæða er til að nefna góða frammistöðu ungu nýliðanna í liðinu sem sýndu í þessum leik að þeir standa sig alltaf vel þegar á reynir.
Ennfremur er ástæða til að nefna góða frammistöðu Gulla og Trausta í markinu sem stóðu einsog fjall og klettur og hleyptu engum pekki í gegn.
Næsti leikur hjá Meistaraflokki SR er líklega 20.nóvember og þá við Björninn.