Fréttir

Total items: 1194

Átök í kvöld !

Dags: 16.11.2003 18:40


Í kvöld eigast við SA og Björninn í Meistaraflokki karla og í 3.flokki. Björninn er spennandi lið og fundum við SR-ingar fyrir þeirri spennu þegar við spiluðum við þá s.l. miðvikudag en sá leikur endaði 0 - 0. Bjarnarmenn hafa verið í ströngu þol og þjálfunar prógrammi hjá hinum Rússnenska Sergei Zak og heyrst hefur að menn hafi hreinlega ekki náð að mæta á allar þrekæfingarnar vegna þreytu. Sama má segja um gamla hokkíveldið SA þar sem ungur og efnilegur þjálfari er að lumbra á þeim á slóvakíska vísu. Leikurinn í kvöld norður á Akureyri verður án efa gríðarlega spennandi fyrir áhorfendur og því ekki úr vegi að skella sér í höllina.